Framúrskarandi fyrirtæki 2010

    Árni Páll Árnason, efnahags og viðskiptaráðherra, afhenti í dag fjórum fyrirtækjum  viðurkenningu frá Creditinfo sem staðfestir að fyrirtækin flokkist sem framúrskarandi fyrirtæki. Fyrirtækin sem veittu viðurkenningunni móttöku voru Alcan, CCP, Össur og Stálskip.   

    Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu  sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins.  Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem  framúrskarandi fyrirtæki. Fyrirtækin sem skipuðu 10 efstu sætin voru auk þeirra sem hlutu viðurkenninguna HB Grandi, Vistor, Loftleiðir – Icelandic, Bananar ehf, KPMG hf og Nathan og Olsen.

    Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Sömuleiðis máttu eignir aldrei vera undir 100 milljónum og eiginfjárhlutfall aldrei minna en 20%. Einnig þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo.

    Creditinfo vill með þessari viðurkenningu vekja athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í viðskiptum og geta verið fyrirmynd annarra fyrirtækja sem vilja ná góðum árangri. 



    Á myndinni eru Guðrún Helga Lárusdóttir, Reynir Grétarsson,  Edda Heiðrún Grétarsdóttir, Árni Páll Árnason, Rannveig Rist og Stefán Sigurðsson.

    Nánari upplýsingar veitir Jóhann Níels Baldursson í síma 550-9600 eða á johannb(hjá)creditinfo.is

    Eftirfarandi fyrirtæki uppfylltu þau skilyrði sem lögð voru til grundvallar við gerð matsins:

     

    Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi