Þjónustuvefur FMV
Á þjónustuvef Fjölmiðlavaktarinnar birtast fréttir og frásagnir fjölmiðlanna jafnóðum og þær eru fluttar.Fáðu fréttir blaðanna, ljósvakamiðlanna og netmiðlanna á einn stað, þar sem þú getur fylgst í návígi með umfjölluninni, flett upp eldri fréttum og metið helstu áhrifaþætti. Örugg lausn sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
Aðgangur að þjónustuvefnum er innifalinn í áskrift að fjölmiðlavöktun. Vefurinn heldur utan um fjölmiðlaupplýsingar viðkomandi vaktar og er í senn skilvirk upplýsingaveita og gagnageymsla.
Auk fjölmiðlaefnisins, birtir hann niðurstöður innihaldsgreiningar og upplýsingar um tíðni og dreifingu umfjöllunar. Þjónustuvefurinn veitir þér einnig aðgang að Vefheimum, þar sem vöktun á vefnum fer fram og Fréttaleit, einstöku fréttasafni Fjölmiðlavaktarinnar.