Tímamótabækur
Tímamótabók er einstök gjöf til þeirra sem kveðið hefur að á vettvangi fjölmiðlanna. Stendur fyrirtækið, félagasamtökin, stjórnmálamenn, formaðurinn eða forstjórinn á tímamótum eða stendur til að heiðra afreksfólk í íþróttum eða sigursæl landslið?Vinnsla bókarinnar fer þannig fram að starfsfólk Fjölmiðlavaktarinnar safnar saman þeim greinum og fréttum sem hafa birst. Mikið er lagt upp úr fallegu broti og prentun svo bókin verði sem veglegust. Þá er einnig tekið við eigin efni í bókina, s.s. myndir úr einkasafni, myndasafni fyrirtækisins eða umfjöllun úr fréttabréfum eða kynningarefni.
Ráðgjafar Fjölmiðlavaktarinnar veita nánari upplýsingar um þá fjölmörgu möguleika sem eru fyrir hendi í útgáfu tímamótabóka. Hringdu í síma 550 9600 eða sendu okkur fyrirspurn í tölvupósti.