Markaður og samkeppni
Náðu forskoti á samkeppnina
Fjölmiðlaupplýsingar mynda öflugan grunn fyrir margs konar markaðsgreiningu. Fjölmiðlavaktin hefur þróað greiningarlausnir sem gera kleift að hagnýta þennan grunn í markaðs- og kynningarstarfi.Fylgstu með markaðshræringum
Ein helsta forsenda vandaðs markaðs- og kynningarstarfs er næmur skilningur á samkeppnisumhverfi fyrirtækisins. Því betur sem þú getur fylgist með hræringum á þeim markaði sem þú starfar, þeim mun betur má leiða fram þá styrkleika og veikleika sem eru til staðar.Þá er ekki síður mikilvægt að geta fylgst með fyrirtækjum og vörumerkjum í samtímaspegli fjölmiðlanna. Með því að greina þá mynd sem sem verið er að bregða upp af fyrirtækjum, þjónustu og vörum á þínum markaði, má leggja faglegt mat á bein og óbein markaðsáhrif fjölmiðla.
Verðmæti fjölmiðlaupplýsinga
Neikvæð umræða á Netinu getur sem dæmi, veitt verðmætar upplýsingar um það, hvort gera megi betur í þjónustu við viðskiptavini, hvort auglýsingar feli í sér misvísandi skilaboð sem valda misskilningi eða hvort endurskoða þurfi áherslur í kynningarefni. Fjölmiðlavaktin gerir þér kleift að nálgast upplýsingar sem þessar með hagkvæmum hætti.
Fáðu nýja og breiðari yfirsýn á samkeppnismarkaðinn sem fyrirtækið þitt starfar á. Við vöktum þann hluta fjölmiðlaumræðunnar sem skiptir starfsemi þína máli í blaða-, ljósvaka- og netmiðlum, greinum efnisinnihald og byggjum upp öflugan upplýsingagrunn sem veitt getur ómetanlega markaðsinnsýn.
Kynntu þér greiningarlausnir Fjölmiðlavaktarinnar. Kannaðu hvernig þú getur stuðlað að enn markvissari ákvarðanatöku og áætlanagerð í markaðs- og kynningarmálum:
- Samanburður við önnur fyrirtæki á þínum markaði
- Skilaboð hvaða fyrirtækja eru að ná í gegn
- Hvaða málefni eru ríkjandi í umræðunni
- Styður umræðan tilteknar markaðsáherslur, tilboð o.fl.
- Umræða sem bregðast þarf beint eða óbeint við, s.s. á Netinu
- Faglegt mat á jákvæðum og neikvæðum fjölmiðlaáhrifum fyrir ásýnd og orðspor
- Mælikvarðar fyrir áherslur í kynningarstarfi og auglýsingum
- Aðgengilegar greiningarlausnir og auðlæsar niðurstöður
Fáðu nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða sendu okkur tölvupóst.