Áfallastjórnun
Áföll geta hvenær sem er dunið fyrirvaralaust yfir. Þegar svo ber undir skiptir greiður aðgangur að fjölmiðlaupplýsingum og áreiðanlegum greiningarlausnum sköpum.
Einn helsti styrkur Fjölmiðlavaktarinnar er sveigjanleg þjónusta, sem nýtur sín hvað best þegar mikið liggur við. Með okkar aðstoð getur þú fylgst í návígi með framvindu mála í fjölmiðlum, almennt séð eða afmarkaða þætti og lagað viðbragðsáætlanir jafn óðum að rás atburða.
Þá leggur sérhæfð úrvinnsla fjölmiðlaupplýsinga grunninn að faglegu mati á áhrifum atburðarásarinnar og stefnumótun í kjölfarið.
Greiningarlausnir FMV vegna áfallastjórnunar varpa ljósi á:
- Hvaða og hvers konar skilaboð einkenna fjölmiðlaumræðuna
- Hversu útbreidd er umræðan í blaða-, ljósvaka- og vefmiðlum
- Er greinanlegur munur á umfjöllun einstakra miðla
Fáðu nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða með tölvupósti.