Greiningarskýrslur
Fjölmiðlavaktin þín í máli og myndum
Greiningarskýrslur eru ein þekktasta afurð Fjölmiðlavaktarinnar. Fjallað er um yfir framvindu viðkomandi fjölmiðlavaktar í máli og myndum og helstu niðurstöður teknar saman á nokkurra mánaða fresti. Hverri greiningarskýrslu fylgir jafnframt kynning á niðurstöðum, allt eftir samkomulagi. Sérfræðingur okkar mætir á staðinn, fer yfir helstu niðurstöður og svarar spurningum sem viðkomandi greining kann að vekja.
Mörgum viðskiptavinum þykir hentugt að fylgja fjölmiðlavöktun sinni eftir með reglubundnum kynningum á niðurstöðum, einkum ef hópur starfsmanna og stjórnenda þarf að vera upplýstur um gang mála. Þá greiða greiningarskýrslurnar einnig fyrir reglubundnu gæðamati á forsendum viðkomandi fjölmiðlavaktar og skilgreiningum.
Reglubundnar greiningarskýrslur:
- Auðvelda miðlun fjölmiðlaupplýsinga innan fyrirtækisins
- Greiða fyrir reglubundnu gæðamati á framkvæmd fjölmiðlavöktunar
Nánari upplýsingar veitir Magnús Heimisson, forstöðumaður fjölmiðlagreininga.