Yfirsýn

Stjórnaðu þinni eigin fjölmiðlagreiningu

Góð yfirsýn er forsenda þess að réttar ákvarðanir séu teknar á réttum tíma. Þú vilt vita hvað er í gangi, hvort þú þurfir að bregðast við og hvernig, geta fylgst með framgangi fjölmiðlasamskipta á eigin vegum eða samkeppninnar og lagt upplýst mat á framhaldið á skilvirkan og hagkvæman hátt.

Yfirsýn í stóru jafnt sem smáu

Þjónustuvefur Creditinfo er hannaður með það fyrir augum að veita viðskiptavinum Fjölmiðlavaktarinnar slíka yfirsýn í stóru jafnt sem smáu. Auk þess að vera helsta upplýsingaveita hvers viðskiptavinar, er hann einnig öflugur gagnagrunnur og örugg gagnageymsla. Aðgangsstýring tryggir öryggi upplýsinganna.

Upplýsingaveita 24/7

Á þjónustuvefnum fær hver viðskiptavinur aðgang að eigin þjónustusíðum. Viðmótið er notendavænt og framsetning upplýsinga aðgengileg. Meginhlutverk þjónustuvefsins er að halda utan um upplýsingasafnið þitt og þú hefur að sjálfsögðu óheftan aðgang að allri þjónustu sem þú ert áskrifandi að, allan sólarhringinn. Með farsíma sem styður notkun tölvupósts og vafra, geturðu fylgst með öllum fréttasendingum í símanum.

Þjónustuvefurinn veitir aðgang að eftirtöldu:

Vaktin mín er yfirlitssíða fyrir þá þjónustu sem þú ert áskrifandi að hjá Fjölmiðlavaktinni.

Yfirsýn

(upphafssíðan) birtir blaða-, ljósvaka- og veffréttir, ásamt niðurstöðum innihaldsgreiningar í jákvæðar, hvorki né og neikvæðar fréttir. Á yfirsýninni má jafnframt sjá hvernig umfjöllun skiptir sér eftir miðlum (í heild/eftir tímabilum), skoða og prenta út einstaka umfjöllun og leita í eigin fréttasafni.

Greining

verður líklega uppáhaldssíða margra, en þar getur þú unnið ýmis konar fjölmiðlagreiningar upp úr fréttasafninu þínu. Framsetning er myndræn í köku, súlu- og línuritum og sýnir m.a. dreifingu umfjöllunar eftir miðlum og magni.

Vefheimur

heldur utan um umfjöllun á öðrum vöktuðum netmiðlum en veffréttamiðlum. Til hægðarauka er vefheimnum skipt í þrjá flokka eða ritstýrða netmiðla, upplýsingaveitur og blogg.

Frétta- og þáttayfirlit

veita aðgengilega og fljótlega yfirsýn yfir fréttir og fréttatengda umræðuþætti í útvarpi og sjónvarpi.

Fréttaleit

er leitarvél sem veitir ótakmarkaðan aðgang að einstöku gagnasafni Fjölmiðlavaktarinnar. 

Fréttasafn Fjölmiðlavaktarinnar

Spannar fréttir allra helstu prentmiðla frá 1. mars 2005 og ljósvakamiðla frá 13. október 2004.  
Fáðu nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða sendu okkur tölvupóst.

 

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi