Vefheimur
Er verið að ræða um fyrirtækið þitt á netinu?
Hver er raunveruleg upplifun fólks á samskiptum sínum við fyrirtækið þitt? Er verið að sauma að því með neikvæðum ummælum eða rangfærslum?
Verðmæti upplýsinganna
Í vefheimum myndast iðulega vettvangur fyrir verðmæta upplýsingaöflun. Með því að leggja við hlustir, má greina hvort bæta megi þjónustuna við viðskiptavini, þekkingu þeirra á vörum og þjónustu fyrirtækisins eða hvort ástæða sé til að endurskoða áherslur í auglýsinga- og kynningarefni. Einnig geta skapast verðmæt tækifæri fyrir milliliðalaus samskipti við viðskiptavini, þar sem koma má að mikilvægum leiðréttingum og hindra frekari rangfærslur.
Vefheimur safnar saman umræðu og spjallþráðum opinna og óritstýrðra samfélagsvefa sem vinsælir eru til skoðanaskipta. Með vöktun geta fyrirtæki fylgst með þeirri samfélagsumræðu sem þar sprettur fram og gripið inn í umræðuna ef þurfa þykir.
Vöktun Vefheims skiptist í þrjá flokka eftir því hvaðan umfjöllunin kemur:
A-FLOKKUR Fréttaveitur/Fréttablogg. AMX, Smugan, Silfur Egils, Sérvaldir Pressupennar, Eyjublogg. | B-FLOKKUR Spjallvefir/Umræðuþræðir Barnaland.is, er.is. | C-FLOKKUR Stjórnmálamenn og fræðimenn Bloggsíður ráðherra og háskólaprófessora |