Vörumerkjavöktun
Er vörumerkið þitt undir smásjánni á einhverjum miðlinum?
Vörkumerkjavöktun vaktar alla umræðu um vörumerki – þitt eða samkeppninnar. Reynslan sýnir að umræða um vörur og þjónustu getur orðið býsna fjörug, ekki hvað síst á netinu.
í Vefheimum myndast því oft á tíðum vettvangur fyrir verðmæta upplýsingaöflun, sem nýtist með margvíslegu móti í markaðs- og kynningarmálum. Má bæta þjónustuna með einföldum hætti, er ástæða til að bæta markvisst vöruþekkingu viðskiptavina eða þyrfti jafnvel að endurskoða áherslurnar í auglýsinga- og kynningingarefni?
Vörumerkjavöktun FMV er sérhæfð þjónusta, sniðin að þörfum þeirra sem þurfa einfalda vöktun á afmörkuðum sviðum.
Fáðu nánari upplýsingar um vörumerkjavöktun hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða sendu okkur tölvupóst.