Vöktun

Fáðu yfirsýn yfir þá umfjöllun sem skiptir þig máli

Fjölmiðlavaktin veitir alhliða vöktun á vettvangi fjölmiðlanna. Prentmiðlarnir sem við vöktum eru 29 talsins, en auk dagblaðanna fjögurra bjóðum við vöktun á 12 tímaritum og 13 landsmálablöðum. Á öldum ljósvakans vöktum við um 20 fréttatíma og fréttatengda umræðuþætti og í vefheimum leggjum við hlustir við hjá tæplega 30 fréttamiðlum, upplýsingaveitum og samfélagsmiðlum. Við fylgjumst grannt með þróuninni innan fjölmiðlakerfisins og tökum í vöktun nýja miðla jafnóðum og þeir ryðja sér til rúms.

Fyrirtækjavakt eða stikkorðavakt

Menn eða málefni. Vinnustaðurinn, samkeppnin eða atvinnugreinin. Fjölmiðlavaktin skiptist í fyrirtækjavakt annars vegar og stikkorðavakt hins vegar. Með þessu móti getum við nálgast innihald fjölmiðlanna frá óteljandi sjónarhornum og þar með vaktað nákvæmlega þá umfjöllun sem skiptir þig máli.

Þjónusta sniðin að þínum þörfum

Fjölmiðlavaktin leggur áherslu á að veita góða þjónustu, sniðna að þörfum hvers og eins. Þú getur valið á milli þriggja mismunandi vöktunarleiða, háð því hvenær dagsins þú vilt að fjölmiðlavaktin þín hefjist. Öll umfjöllun er send út á rafrænu formi með tölvupósti á netföng að eigin vali, ýmist jafnóðum á tveggja tíma fresti eða í einu lagi í lok dags, allt eftir því hvaða vöktunarleið verður fyrir valinu. Samhliða því getur þú nálgast fréttasafnið þitt á einum stað á þjónustuvef Creditinfo, rýnt einstakar fréttir og greint framvindu mála.

Aðgangur að þjónustuvefnum veitir einnig aðgang að öflugum gagnagrunni Creditinfo, sem flokkar og greinir fréttasafnið þitt út frá ólíkum forsendum. Þjónustuvefurinn veitir þannig einstaka yfirsýn yfir þá fjölmiðlaumfjöllun sem þú þarft að fylgjast með.

"Ég spara mikinn tíma, vissulega. Það skiptir mig þó ekki síður máli öryggið, að vita alltaf hvað er í gangi í fjölmiðlunum."

Fáðu nánari upplýsingar um vöktun og vöktunarleiðir FMV hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða sendu okkur tölvupóst.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi