Greining

Færðu jákvæða, hlutlausa eða neikvæða umfjöllun?

Fjölmiðlaklippur og ljósvakahandrit geta skipt hundruðum á einum sólarhring. Enginn gerir sér betur grein fyrir en við, að aðgangur að innihaldi fjölmiðlanna getur einn og sér dugað skammt. Þess vegna höfum við þróað greiningaraðferðir, sem meta hversu jákvæð, hlutlaus eða neikvæð efnistök ritstýrðra blaða- og ljósvakamiðla eru í þinn garð.

Hámarkaðu virði vöktunarinnar

Innihaldsgreining er sjálfstæður verkþáttur innan Fjölmiðlavaktarinnar, sem stuðlar að auknu virði viðkomandi vöktunar. Faglegt mat er lagt á áhrif blaða- og ljósvakaumfjöllunar gagnvart markaðsstærðum á borð við orðspor og ásýnd fyrirtækja, stofnana eða vörumerkja, svo að dæmi séu nefnd.
Þessi sérhæfða þjónusta hentar sérstaklega þeim viðskiptavinum, sem leggja áherslu á að vera ávallt upplýstir um mælanleg áhrif fjölmiðla á einstökum mörkuðum eða málefnasviðum. Einnig er hún mikilvæg þeim sem þurfa að bregðast skjótt við hvers kyns umfjöllun, með hliðsjón af því sem greiningarniðurstöður gefa tilefni til.

Fjölmiðlaráðgjöf

Á stundum borgar sig að fara í nákvæmari greiningu. Umræðan í þjóðfélaginu getur sem dæmi tekið óvænta stefnu eða ný málefni skotið upp kollinum. Fjölmiðlavaktin býður því einnig fjölmiðlaráðgjöf með ítarlegri fjölmiðlagreiningu, úttektum og sérfræðiaðstoð við túlkun niðurstaðna.

"Greiningin er það sem ég myndi kalla þriðju víddina í þjónustu Fjölmiðlavaktarinnar, hún gefur þá dýpt í yfirsýnina sem þarf svo það sjáist hvaða stefnu hlutirnir eru að taka."

Greiningaraðferðir Creditinfo byggja á áralangri reynslu Fjölmiðlavaktarinnar af innihaldsgreiningu á íslensku fjölmiðlaefni.
Fáðu nánari upplýsingar um greininguna hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða sendu okkur tölvupóst.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi