Vöktunarleiðir
Veldu þá leið sem þér hentar
Vöktunarþjónustan skiptist í þrjár þjónustuleiðir sem nýtast fyrirtækjum og einstaklingum í mismunandi starfsemi. Allir helstu umræðu- og fréttatengdir þættir eru vaktaðir auk allra dagblaða og valdra netmiðla og landsmálablaða. Einnig nær vöktun til þeirra miðla sem teljast óritstýrðir en eru samt fjölsóttir. Undir þennan flokk falla síður eins og barnaland.is, amx.is, smugan.is og aðrar síður þar sem almenn skoðanaskipti fara fram (bloggsíður).
Mismunandi vaktir
Tvenns konar vaktir eru í boði eða fyrirtækjavakt þar sem allar fréttir um tiltekin fyrirtæki eru vaktaðar og stikkorðavakt, en þá eru valin stikkorð vöktuð. Þú getur valið aðra hvora vaktina eða báðar, en engin takmörk eru á fjölda fyrirtækja eða stikkorða í vöktun. Einnig býðst áskrift að frétta- og þáttayfirlitum.
Leið 1
Þessi leið er ætluð þeim sem fylgjast grannt með fjölmiðlum og þurfa að bregðast skjótt við, ef svo ber undir. Blaðafréttir vaktaðra prentmiðla berast áskrifendum Leiðar 1 í tölvupósti kl. 08:15 aðLeið 2
Þessi leið hentar þeim sem fylgjast vel með umfjöllun fjölmiðla, þó að skjótur viðbragðstími sé ekki eins mikilvægur og hjá áskrifendum Leiðar 1. Í Leið 2 eru
fréttir vaktaðra prentmiðla og ritstýrðra vefmiðla sendar út með tölvupósti á milli kl. 10:15 og 12:15. Fréttir ljósvakamiðla og frekari veffréttir berast síðan á tveggja tíma fresti fram til kl. 00:15 eftir miðnætti. Áskrifendur að þessari leið fá aðgang að Yfirsýn, eigin upplýsingaveitu á þjónustuvef FMV, sem heldur utan utan um allar fjölmiðlaupplýsingar viðkomandi vaktar og úrvinnslu þeirra. Leið 2 veitir enn fremur aðgang að Fréttaleit, leitarvél Fjölmiðlavaktarinnar og er greitt fyrir hverja frétt eða umfjöllun skv. verðskrá FMV.Leið 3
Þessi leið er sniðin að þeim sem fylgjast með fjölmiðlum, en þurfa ekki að reiða sig á skjót viðbrögð. Áskrifendum að leið 3 berast fréttir prent-
og ljósvakamiðla og ritstýrðra vefmiðla í einu lagi með tölvupósti kl. 00:15 eftir miðnætti. Þeir fá aðgang að Yfirsýn, eigin upplýsingaveitu á þjónustuvef Fjölmiðlavaktarinnar, sem heldur utan um allar fjölmiðlaupplýsingar viðkomandi vaktar og úrvinnslu þeirra. Þá veitir leið 3 aðgang að Fréttaleit, leitarvél Fjölmiðlavaktarinnar og er greitt fyrir hverja frétt eða umfjöllun skv. verðskrá FMV.
Fréttaleit, leitarvél Fjölmiðlavaktarinnar, veitir aðgang að gagnasafni Fjölmiðlavaktarinnar
Fáðu nánari upplýsingar um vöktunarleiðirnar hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða sendu okkur tölvupóst.