Fjölmiðlavöktun

Vertu með alla fjölmiðla á einum stað

Á hverjum sólarhring flæðir ógrynni upplýsinga um hringrásir fjölmiðlanna. Umfang og áhrifamáttur þessa stöðuga streymis kallar á skilvirkar aðferðir, sem greina mælanleg áhrif fjölmiðla. Fjölmiðlavakt Creditinfo hefur þróað sérhæfða þjónustu, sem gerir þér kleift að fylgjast í návígi með þeim hluta fjölmiðlaumræðunnar sem skiptir þig máli, bæði hratt og örugglega.

Vöktun, greining, yfirsýn

Þjónusta Fjölmiðlavaktarinnar er byggð upp í þremur aðskildum þrepum eða alhliða vöktun fjölmiðlaefnis, greiningu og yfirsýn, sem gerir þér kleift að vega og meta áhrif fjölmiðlanna gagnvart starfsvettvangi þínum, samkeppnisaðilum eða atvinnugrein.

Breitt þjónustusvið

Breitt þjónustusvið og markviss viðskiptastjórnun gerir okkur kleift að laga hverja fjölmiðlavöktun að ólíkum þörfum hvers og eins. Þjónusta Fjölmiðlavaktarinnar spannar allt frá almennri áskriftarþjónustu á fjölmiðlavöktun, efnisflokkum og auglýsingavöktun að faglegri fjölmiðlagreiningu, markaðsgreiningu og fjölmiðlaráðgjöf.

„Gríðarlegur munur að hafa á einum stað allar upplýsingar um hvað er að gerast í fjölmiðlunum og með hvaða afleiðingum fyrir okkur.“

Tryggðu þér forskot. Ráðgjafar okkar veita nánari upplýsingar um þjónustu Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða með tölvupósti.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi