Frétta- og þáttayfirlit
Umræðan á ljósvakanum í hnotskurn
Fréttayfirlit FMV listar upp fréttir sem eru fluttar í útvarpi og sjónvarpi. Yfirlitið er aðgengilegt áskrifendum á þjónustuvef Fjölmiðlavaktarinnar, það er uppfært daglega og birtir ásamt fyrirsögn inngang að öllum vöktuðum ljósvakafréttum. Hér er því um gagnlega þjónustu að ræða fyrir þá, sem þurfa á góðri yfirsýn yfir ljósvakafréttir dagsins að halda. Þú getur pantað þær ljósvakafréttir sem þig vantar eða fengið sjálfvirkar fréttaábendingar frá Fjölmiðlavaktinni.Þáttayfirlit FMV greinir efnistök vaktaðra útvarps- og sjónvarpsþátta, en við vöktum alls 20 fréttatíma og fréttatengda umræðuþætti. Auk fyrirsagnar lýsir útdráttur viðkomandi viðtali, umræðum eða innslagi og veitir þáttayfirlitið því góða yfirsýn yfir umræðuna sem fer fram á þessum vettvangi fjölmiðlanna. Það er aðgengilegt áskrifendum á þjónustuvef Fjölmiðlavaktarinnar og er uppfært daglega. Aðgengileg og gagnleg þjónusta þeim, sem þurfa að fylgjast með umræðunni. Þú getur pantað þá umfjöllun sem þig vantar eða fengið sjálfvirkar þáttaábendingar frá Fjölmiðlavaktinni.
Fáðu nánari upplýsingar um fréttayfirlit, þáttayfirlit og ábendingar hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða sendu okkur fyrirspurn á netfangið radgjof@creditinfo.is.