Orðsporsstýring

Góður orðstír deyr aldreigi

Þessi þekktu spakmæli úr Hávamálum eru lýsandi fyrir þau verðmæti, sem góður orðstír stendur fyrir. Í fjölmiðlavæddu samfélagi samtímans, getur orðspor fólks og fyrirtækja beðið hnekki á skömmum tíma eða horfið hljóðlaust í háværan klið þjóðfélagsumræðunnar. 

Ímynd – ásýnd og orðspor, er þverfaglegt viðfangsefni í markaðs- og kynningarmálum. Sem afar huglæg stærð, er ímynd enda margslungið fyrirbæri, sem nálgast þarf frá ólíkum sjónarhornum. Það einfaldar síðan vart málið, að utan að komandi áhrifaþættir geta haft smitandi áhrif á ímynd fyrirtækisins, s.s. neikvæð umræða sem snertir sambærilega starfsemi og þína.

Greining fjölmiðlaupplýsinga er mikilvægur liður í öllu því starfi sem snýr að orðsporsstýringu (reputation management). Með aðstoð þeirra greiningarlausna sem við bjóðum, getur þú vegið og metið áhrif jákvæðrar og neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar og greint hvort jákvæð eða neikvæð smitáhrif fyrir ímynd fyrirtækisins leynist í umræðunni. 

Fáðu nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða með tölvupósti.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi