Almannatengsl
Almannatengsl á faglegum grunni
Á vettvangi fjölmiðlanna fer þjóðfélagsumræðan fram. Deigla þeirra er risavaxin og áhrif óumdeild á viðhorf og athafnir fólks á öllum sviðum samfélagsins.
Greiningar á fjölmiðlaupplýsingum má nýta bæði á eigindarlegum og megindarlegum grunni (qualitative, quantitative). Upplýsingar um tíðni, magn og dreifingu fjölmiðlaumfjöllunar gera þér kleift að greina umræðuna og fela auk þess í sér vísbendingar um mismunandi áherslur í fréttamati fjölmiðla.
Þá er innihaldsgreining fjölmiðlaefnis í jákvæða, hvorki né eða neikvæða umfjöllun, mikilvæg fyrir stöðu- og árangursmat í almannatengslum og stefnumótun.
Við vöktum þann hluta fjölmiðlanna sem þú þarft að fylgjast með og greinum efnisinnihald þeirra. Með því móti byggjum við upp öflugan upplýsingagrunn, sem gerir þér kleift að fylgjast með og greina umræðuna í návígi.
Kynntu þér lausnir Fjölmiðlavaktarinnar á sviði almannatengsla:
- Rafrænar fjölmiðlaúrklippur og örugg gagnavarsla
- Greining á innihaldi í jákvæða/neikvæða umfjöllun
- Aðgangur að öflugum gagnagrunni á þjónustuvef
- Greiningasíur fyrir mælingar á tíðni og dreifingu
- Faglegur grunnur fyrir áætlanagerð í almannatengslum og eftirfylgni
- Fréttaleit með aðgangi að stærsta fréttasafni sinnar tegundar
- Aðgengilegar greiningalausnir og auðlæsar niðurstöður
- Greining á umfjöllunarmynstri miðla
- Vöktun – þú veist alltaf hvað er að gerast, þegar það gerist
- Sveigjanleg vöktun eftir þörfum
- Eftirlit gagnvart hugsanlegum rangfærslum og leiðréttingum
Fáðu nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Fjölmiðlavaktarinnar í síma 550 9600 eða sendu okkur tölvupóst.