Lausnir
Virðisaukandi gildi fjölmiðlaupplýsinga
Fjölmiðlavaktin sérhæfir sig í miðlun hagnýtra fjölmiðlaupplýsinga. Viltu styrkja markaðs- og kynningarstarfið, kortleggja samkeppnina, nýta sóknarfærin sem gefast, greina veikleika eða byggja upp árangursmælikvarða? Virðisauki hagnýtra fjölmiðlaupplýsinga er af mörgum toga.
Við gjörþekkjum islenska fjölmiðlakerfið og áhrifasvið einstakra fjölmiðla. Við erum við sérfræðingar í að rekja efnisinnihald í sundur, svo greina megi markaðsleg, samfélagsleg og pólitísk áhrif fjölmiðlanna. Við beislum hugvitið og þróum nýjar hugbúnaðar- og þjónustulausnir. Teflum fram reyndu fagfólki á öllum stigum þjónustunnar.
Lausnir Fjölmiðlavaktarinnar eru að sama skapi fjölþættar. Blaðaúrklippur eru ekki nema brot af því sem fjölmiðlavöktun nútímans snýst um.
Tryggðu þér forskot. Kynntu þér hvaða lausnir henta þér best.
Ráðgjafar Fjölmiðlavaktarinnar veita þér nánari upplýsingar í síma 550 9600 eða sendu okkur fyrirspurn með tölvupósti.