Fjölmiðlaráðgjöf
Lesið í fjölmiðlana
Fjölmiðlar samtímans spanna sífellt breiðara svið í tíma og rúmi. Um það bera netmiðlar glöggt vitni, nýjasta og hraðskreiðasta viðbót nútímafjölmiðlunar. Þá virðast vegir þjóðfélagsumræðunnar á stundum órannsakanlegir. Óvægin umræða kann að geisa í hluta fjölmiðlanna, á meðan dúnalogn ríkir í öðrum, smáfrétt getur vakið gríðarlegt umtal, en daglegar stórfréttir lítið sem ekkert.Þetta augsýnilega óreiðulögmál getur kallað á sérfræðiálit, svo að henda megi reiður á málin. Fjölmiðlavaktin býður fjölbreytta aðstoð sérfræðinga í fjölmiðlaráðgjöf, sem miðar að því að hámarka virði þjónustunnar fyrir viðskiptavini okkar.
Við aðstoðum þig við að finna réttu svörin við spurningum á borð við:
- Kallar umfjöllun á viðbrögð?
- Hvaða viðbrögð og hvar?
- Er ég að vanmeta/ofmeta áhrifin?
- Eru forsendur fyrir nánari eða umfangsmeiri greiningu?
- Hverju bætir nákvæmari eða umfangsmeiri greining við?
- Hver er líkleg framvinda og áhrif?
- Hver er raundreifing umfjöllunarinnar?
- Hvað segir reynslusarpurinn (case studies)?
- Má auka virði núverandi greiningar?
Nánari upplýsingar veitir Helga Guðrún Jónasdóttir, viðskiptastjóri Fjölmiðlavaktarinnar.