Markviss viðskiptastjórnun

Leiðum fram hagkvæmustu lausnina hverju sinni

Þarfir viðskiptavina okkar eru jafn ólíkar og viðfangsefni  fjölmiðlanna eru mörg. Þess vegna leggjum við ríka áherslu á sveigjanlega og aðgengilega þjónustu á öllum stigum fjölmiðlavöktunar og greininga. Svo að þjónusta okkar nýtist viðskiptavinum sem best, þarf fagleg viðskiptastjórn af okkar hálfu að standa undir nafni.

Með markvissri viðskiptastjórn erum við að vísa m.a. til hæfni okkar að greina þarfir viðskiptavina og leiða fram hagkvæmustu lausnina hverju sinni ásamt faglegri þekkingu á inntaki og starfsvenjum fjölmiðla. Það getur krafist þverfaglegs samráðs innan okkar raða og eru þá færustu sérfræðingar Fjölmiðlavaktarinnar kallaðir til.
Við leggjum áherslu á hagnýta ráðgjöf og trúnað í öllum okkar verkum. Viðskipti snúast í okkar huga um traust.

Markviss viðskiptastjórnun snýst um:

  • Markvissa þarfagreiningu
  • Faglega þekkingu
  • Hagkvæmustu lausnirnar hverju sinni

Nánari upplýsingar veitir Helga Guðrún Jónasdóttir, viðskiptastjóri Fjölmiðlavaktarinnar

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi