Aðferðafræðin

Fjölmiðlavaktin byggir á 30 ára þekkingu og reynslu af miðlun fjölmiðlaupplýsinga. Aðferðirnar, sem við vinnum eftir eru þróaðar í samvinnu við m.a. Cision AB, eitt fremsta fyrirtæki heims í fjölmiðlagreiningum. Innihaldsgreining styðst við eigindlega aðferðafræði, þar sem faglegt mat er lagt á áhrif umfjöllunar á ímynd, ásýnd og orðspor. Fjölmiðlagreiningar eru unnar á mun víðtækari grunni og taka einnig til megindarlegra greininga á borð við magn og tíðni.

Á verðlaunahátíð Amec í London árið 2007 hlaut FMV tvenn verðlaun og eina viðurkenningu fyrir verkefni á sviði fjölmiðlagreininga. Bronsverðlaun voru veitt fyrir verkefnið Innflytjendur en FMV gerði innihaldsgreiningu á allri umfjöllun um innflytjendur fyrir Félagsmálaráðuneytið haustið 2006. Þá hlaut starfsmaður FMV, Anna Hulda Sigurðardóttir, sérfræðingur á greiningarsviði, gullverðlaun í flokknum Young Professional.

Fjölmiðlavaktin hlaut einnig viðurkenningu fyrir þróun á aðferðafræði í fjölmiðlagreiningum.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Heimisson, forstöðumaður fjölmiðlagreininga.

 

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi