Fjölmiðlagreining
Kortleggðu hæðir og lægðir í landslagi fjölmiðlanna
Fjölmiðlagreiningar eru eitt helsta atvinnutæki þeirra sem eru í reglubundnum samskiptum við fjölmiðla og nauðsynleg smásjá fyrir dýpri skilning á starfsemi fjölmiðlanna í bráð og lengd.
Þá veitir vönduð fjölmiðlagreining stefnumörkun í markaðs- og kynningarmálum mikilvæga stoð. Afmörkuð greining getur leitt fram sóknarfæri í fjölmiðlasamskiptum og varpað ljósi á hugsanlega veikleika í markaðs- eða kynningaráherslum.
Viðskiptavinum Fjölmiðlavaktarinnar stendur jafnframt til boða ráðgjöf, bæði varðandi framkvæmd og túlkun fjölmiðlagreininga.
Fjölmiðlagreining getur m.a. tekið til eftirfarandi þátta:
- Innihaldsgreining í jákvæða, hvorki né og neikvæða umfjöllun
- Þróun jákvæðrar/neikvæðrar umfjöllunar eftir tímabilum
- Dreifing eftir miðlum
- Heildartíðni eftir tímabilum ásamt þróun
- Heildarumfjöllun eftir tímabilum ásamt þróun
- Efnisflokkun ásamt þróun eftir tegund umfjöllunar í fréttir, fréttaskýringar
- Forystugreinar, viðtöl, aðsendar greinar, lesendabréf o.s.frv.
- Efnisflokkun eftir málefnum ásamt þróun
- Yfirlit yfir hlutdeild ólíkra hópa í heildarumræðunni
- Samanburður við samkeppnisaðila
- Samanburður á milli atvinnugreina
Nánari upplýsingar veita Magnús Heimisson, forstöðumaður fjölmiðlagreininga og Helga Guðrún Jónasdóttir, viðskiptastjóri Fjölmiðlavaktarinnar.