Hverjir hafa aðgang

Upplýsingar úr gagnagrunnum Creditinfo eru aðeins aðgengilegar þeim aðilum er undirrita áskriftarsamning með ströngum skilyrðum er varða notkun og meðferð gagna.  Einstaklingar hafa ekki aðgang að upplýsingum um vanskil annarra en geta fengið upplýsingar um sjálfan sig.  Forsvarsmenn fyrirtækja geta fengið aðgang í þeim tilgangi að meta hæfi viðskiptavina sinna og þurfa þá að hafa lögvarða hagsmuni, þ.e. að skoða upplýsingar um viðkomandi vegna fyrirhugaðra, yfirstandandi eða liðinna viðskipta.
Lögmenn og fulltrúar þeirra hafa flestir aðgang að upplýsingum Creditinfo auk opinberra aðila, lífeyrissjóða og sveitarfélaga.  Meðal opinberra aðila má telja ráðuneyti, skattstjóraembætti, íbúðarlánasjóð og sýslumenn svo eitthvað sé talið.
Helstu notendurnir eru hins vegar banka- og fjármálastofnanir sem hafa mikla þörf fyrir upplýsingar Creditinfo vegna útlánastarfsemi og almennri starfsemi.   
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi