CIP áhættumat einstaklinga

Í CIP- áhættumati einstaklinga er reiknaðar líkurnar á því að einstaklingur lendi í alvarlegum vanskilum.  Niðurstaða þeirra útreikninga eru oft nefndir lánshæfismat, eða skor (e. credit score). Þeim mun minni sem þær líkur eru, þeim mun betra. 

Upplýsingar sem þessar eru algengar víða erlendis, en vegna þess hve þær eru mismunandi frá einu landi til annars eru tölfræðilíkön ávallt frábrugðin milli landa að einhverju leyti.

Þessi mismunur kemur allt í senn fram í því hvort upplýsingar séu tiltækar, gæði þeirra og hvernig vægi upplýsinga er metið með hliðsjón af öðrum upplýsingum. Breyturnar eru þó nokkuð svipaðar milli landa.

 

Hér má skoða sýniseintak CIP-einstaklingsskýrslu: CIP-einstaklingar.

 

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi