Um umboðsmann lántakenda

Haustið 2009 setti Creditinfo upp stöðugildi umboðsmanns lántakenda, sem ætlað er að vinna að auknu aðgangi einstaklinga að upplýsingum um sjálft sig og kanna sjálfstætt hvers kyns ágreiningsmál sjálfstætt.

Þjónustusvið Creditinfo getur svarað flestum fyrirspurnum um skrá yfir vanskil og tengdar skrár, en ef og þegar fyrirspurnir krefjast nánari athugunar er hún send umboðsmanni til frekari rýni.

Umboðsmaður hefur sömuleiðis flest samskipti við Persónuvernd á sinni könnu, sem og samskipti við aðrar stofnanir og samtök sem láta sér fjármál, neytendavernd, lánveitingar o.fl. varða.

Ennfremur hefur umboðsmaður eftirlit með notkun á skrám Creditinfo, sem er bundin ströngum skilyrðum. Hann getur, undir vissum kringumstæðum, lokað aðgangi aðila að skrám Creditinfo hvort sem er tímabundið eða til langframa.

Umboðsmaður hefur einnig umsjón með því að hleypa af stokkunum sérsvæði fyrir einstaklinga á vef Creditinfo, þar sem þeir munu geta nálgast allar upplýsingar um sig sjálfa (og eingöngu sig sjálfa) sem eru skráðar hjá Creditinfo og/eða miðlað hjá Creditinfo.
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi