Umboðsmaður lántakenda
Hægt er að hafa samband við umboðsmann í síma 550-9600 á hefðbundnum skrifstofutíma og panta viðtalstíma í sama símanúmeri ef þess er æskt að geta farið yfir málin í ró og næði. Yfirleitt er hægt að koma við á skrifstofu félagsins, að Höfðabakka 9, og fá viðtal án sérstakrar tímapöntunar, en að því sögðu er hyggilegra að panta tíma fyrirfram.Er umboðsmanni ætlað að vinna að því að auka aðgengi fólks að upplýsingum um sig sjálft og kanna sjálfstætt hvers kyns ágreiningsmál. Umboðsmaður hefur einnig eftirlit með viðskiptavinum félagsins, hvað starfsleyfisskyldar upplýsingar varðar.
Jafnframt er hægt að senda umboðsmanni fyrirspurn eða viðtalspöntun í netfangið umbodsmadur@creditinfo.is