Um aðrar skráningar Creditinfo
Hvað er Hlutafélagaþátttaka?
Hlutafélagaþátttaka er keyrsla í Hlutafélagaskrá, sem tekur saman í einn lista þau hlutafélög sem einhver einn einstaklingur tengist, þar sem kemur fram hvaða hlutverki (eða hlutverkum) hann gegnir í viðkomandi félögum.
Þar kemur því fram hvort viðkomandi sé í stjórn félagsins (og þar með hvort hann er stjórnarformaður, stjórnarmaður eða varamaður í stjórn); framkvæmdastjóri; prókúruhafi; stofnandi og/eða endurskoðandi félagsins. Einnig kemur fram um hversu mörg félög er að ræða.
Hvaða annað en upplýsingar um vanskil og rekstrarsögu er skráð og miðlað hjá Creditinfo?
Í gagnagrunna Creditinfo eru einnig skráðar upplýsingar sem kunna að hafa áhrif við mat á lánshæfni einstaklinga og lögaðila, án þess að þær upplýsingar tengist vanskilum.
Hér er helst um að ræða eftirfarandi:
- Upplýsingar um kaupmála milli hjóna
- Svipting fjárræðis
- Svipting sjálfræðis
- Svipting lögræðis
- Innkallanir vegna opinberra skipta
- Innkallanir vegna slita á félögum
- Félagaslit
Um kaupmála
Með kaupmála geta hjón ákveðið að vissar eignir verði séreign annars þeirra. Kaupmálar eru skráðir í kaupmálabók sýslumanna, sem og þær breytingar sem eru gerðar á þeim síðar meir, og sömuleiðis riftun þeirra eða ógilding. Í skráningu kemur fram hvort um kaupmála sé að ræða, breytingu á kaupmála, riftun o.s.frv.; dagsetning kaupmálans; og það embætti sýslumanns sem færði upplýsingarnar um kaupmálann í kaupmálabók, fyrir utan aðila kaupmálans, þ.e. viðkomandi hjón.
Um sjálfræðis-, fjárræðis- og lögræðissviptingu
Ein mikilvægustu réttindi borgaranna snúa að sjálfræði þeirra og fjárræði (sem í sameiningu er nefnt lögræði) og því er enginn sviptur þeim réttindum nema að mjög vel athuguðu máli. Héraðsdómarar krefjast mjög ítarlegra gagna um hvert mál áður en gripið er til svo róttækrar ráðstöfunnar. Sviptingar þessar eru því fremur óalgengar og eiga sennilega flestar sameiginlegt að hinn svipti býr við mjög alvarlegt ástand, að það gerir hann ófæran um að sjá um að ráða ráðum sínum sjálfur. Í sumum tilvikum er sviptingin tímabundin og öðlast viðkomandi þá réttindi sín aftur nema svipting sé framlengd.
Upplýsingar um sviptingu sjálfræðis, fjárræðis og/eða lögræðis er skylt að auglýsa í Lögbirtingablaði. Þar kemur fram um hvern er að ræða, dagsetning sviptingar og sá héraðsdómur sem felldi úrskurðinn.
Samningar sem ólögráða maður gerir binda hann ekki. Þá er ekki hægt að gera aðför eða krefjast nauðungarsölu í eign manns, hafi hann verið sviptur fjárræði sínu í þeirri eign, á grundvelli fjárhagsskuldbindinga sem hann tekur á sig eftir að hafa verið sviptur fjárræðinu. Sama gildir ef hann hefur gengist í ábyrgð fyrir slíkar skuldbindingar eftir sviptingu fjárræðis.
Um opinber skipti
Við flesta hjónaskilnaði skipta fyrrum hjón sameiginlegum eignum á milli sín án verulegra vandræða. Ef deilur rísa upp um skiptingu eigna þannig að fyrrum hjón geta ekki leyst ágreininginn sín á milli, þá getur annar aðilinn eða þau bæði, óskað eftir opinberum skiptum til fjárslita. Komi til þess þá skipar héraðsdómari skiptastjóra til annast skiptinguna, sem lítur til ýmissa meginreglna í þeim efnum.
Einnig er opinberum skiptum stundum beitt hvað varðar dánarbú. Einn eða fleiri af erfingjum geta óskað eftir opinberum skiptum, og við ákveðin skilyrði geta kröfuhafar og sýslumaður sömuleiðis sett fram þær óskir. Aftur er það héraðsdómari sem úrskurðar og skipar skiptastjóra.
Auglýsingar um innkallanir vegna opinberra skipta eru birtar í Lögbirtingablaði og í skráningu kemur fram dagsetning auglýsingar, embætti héraðsdóms og upplýsingar um skiptastjórann, en þeir sem telja sig eiga kröfur í bú senda kröfulýsingar sínar til hans.
Um félagaslit
Ákveði eigendur hlutafélags að hætta rekstri er þeim skylt að kunngera þær áætlanir. Þeir velja aðila í svonefnda skilanefnd og meðal verkefna hennar er að óska eftir kröfulýsingum frá þeim aðilum, sem telja sig eiga kröfur á félagið. Skilanefnd auglýsir einnig þegar skiptum félagsins er að fullu lokið.
Skilanefnd auglýsir innkallanir vegna slita á félagi í Lögbirtingablaði og einnig þegar félaginu hefur verið slitið. Í skráningu innköllunar kemur fram dagsetning auglýsingarinnar og heimilisfang þangað sem skilanefnd beinir kröfuhöfum að skila kröfulýsingum. Í skráningu félagaslita kemur fram dagsetning auglýsingarinnar.