Skilmálar
1. Áskrifandi Creditinfo (LT) fær aðgang að þjónustu LT, samkvæmt samningi þessum.
2. Allar upplýsingar úr skrám LT eru trúnaðarmál og mega ekki afhendast öðrum, beint eða óbeint, nema að fengnu skriflegu samþykki LT.
3. Áskrifendur, sem hafa fleiri en eina starfsstöð eða nafn skuldbinda sig til að hafa öll útibú eða starfsstöðvar tengdar skrá LT, beint eða óbeint. Áskrifandi skuldbindur sig til að láta LT vita ef breytingar verða á fyrirkomulagi útibúa eða starfsstöðva hans.
4. Áskrift felur í sér rétt til þess að óska skráningar í skrá LT. Áskrifandi skuldbindur sig til að upplýsa LT um það við upphaf áskriftarsamnings, hverjir hafa þessa heimild. Verði breytingar þar á af hálfu áskrifanda, ber honum að láta LT vita.
5. Óheimilt er að óska skráningar, vegna skuldar þess er í hlut á við þriðja mann, nema áskrifandi sé lögstofa. Ef viðkomandi greiðir skuld sína við áskrifanda, skal áskrifandi þegar í stað senda tilkynningu þar um til LT.
6. Til þess að mega óska skráningar hjá LT þarf áskrifandi að hafa einhverja af eftirfarandi heimildum:
• Dóm.
• Framkvæmt fjárnám með eða án árangurs.
• Aðfararhæfa sátt.
• Áritaða stefnu.
• Skuldarviðurkenningu þar sem hinn skráði hefur skriflega gengist við því fyrir áskrifanda að skuld sé í gjalddaga fallin.
• Greiðsluáskorun skv. 7. gr. laga um aðför í þeim tilfellum að frestur samkvæmt ákvæðinu er liðinn.
• Vanefndur nauðarsamningur.
• Heimild í skulda-/lánaskjali þar sem hinn skráði hefur með yfirlýsingu í skjalinu fallist á heimild áskrifanda til að óska skráningar á vanskilum sem hafa varað í að minnsta kosti 40 daga að öðrum skilyrðum uppfylltum.
7. Til að óska megi skráningar þarf höfuðstóll skulda að vera a.m.k. kr. 30.000,-.
8. Ósk um skráningu skal hafa að geyma eftirfarandi upplýsingar:
• Nafn skuldara og kennitölu.
• Dagsetningu heimildar skv. 6. gr. og tegund.
• Auðkenni kröfu hjá áskrifanda.
• Upplýsingar um kröfuhafa.
9. Ósk um skráningu skal vera undirrituð af starfsmönnum, sem til þess hafa heimild, sbr. 4. gr.
10. Hverri áskrift fylgir réttur til að gera fyrirspurnir í skrá LT. Einungis þrír starfsmenn hjá hverjum áskrifanda hafa heimild til að gera fyrirspurnir á grundvelli samnings þessa og skulu þeir hafa eigin leyninúmer, sem þeir mega ekki láta öðrum í té. Áskrifanda er heimilt, gegn endurgjaldi, að fá fleiri leyninúmer. Áskrifandi skuldbindur sig til að upplýsa LT um það við upphaf áskriftarsamnings, hverjir hafa þessa heimild. Verði breytingar þar á af hálfu áskrifanda, ber honum að láta LT vita. Upplýsingar úr skrám LT má eingöngu nota við könnun á lánstrausti, í tengslum við væntanleg eða yfirstandandi viðskipti, eða lögvarðir hagsmunir að öðru leyti eru fyrir hendi. Hætti aðili, sem hefur þessa heimild, störfum hjá áskrifanda, ber áskrifanda að tilkynna LT það. Öll hugsanleg misnotkun fyrrum starfsmanns áskrifanda er á ábyrgð áskrifanda. LT getur gert kröfu á áskrifanda vegna tjóns sem kann að hljótast af slíkri misnotkun á skrám LT.
11. Starfsmaður hjá áskrifanda, sem hefur heimild til að sækja upplýsingar í skrá LT, er bundinn þagnarskyldu um innihald þeirra upplýsinga.
12. Áskrifanda er skylt að geyma allar upplýsingar úr skrá LT á öruggum stað.
13. Áskrifandi er ábyrgur gagnvart tjóni sem LT, skuldari eða aðrir verða fyrir vegna rangrar skráningar sem stafar af mistökum áskrifanda eða starfsmanna hans, sem og vegna tjóns er hlýst af því að beiðni um afskráningu er ekki send á réttum tíma. Creditinfo Lánstraust hf. ber ekki ábyrgð á hugsanlegu tjóni sem kann að hljótast af því að upplýsingar úr skrá þess reynast rangar, eða kerfi virka rangt eða ekki. Gildir þetta um allar þær upplýsingar sem LT miðlar.
14. Áskrifanda er með öllu óheimilt að afrita skrá LT, samtengja hana við aðra skrá eða vinna með hana á sambærilegan hátt, þó að viðkomandi kunni að fá tækifæri til slíks, t.d. fyrir mistök, nema með skriflegu samþykki LT.
15. Synji áskrifandi aðila, sem skráður er á skrá LT, um lánveitingu vegna upplýsinga úr skránni, ber honum að greina viðkomandi frá þeirri ástæðu. Jafnframt ber áskrifanda að greina viðkomandi frá því að honum er heimilt að leita til LT til að fá að vita hvaða upplýsingar um hann séu á skrá LT.
16. Ef upp koma andmæli gegn réttmæti skráningar, er LT heimilt að krefja áskrifanda um skýringar og gögn. Áskrifanda ber að svara tilmælum LT þar um innan 8 daga, en ella verður skráningu eytt.
17. LT áskilur sér rétt til að vera óbundinn af einstökum ákvæðum samnings þessa, ef lögum er breytt á þann veg, að efndir séu ómögulegar af hálfu LT. Sama gildir ef aðrar opinberar reglur standa efndum í vegi, svo og vis major af einhverri tegund.
18. Aðgangur að markhópaleit er bundin því skilyrði að notkun áskrifanda á upplýsingum sem fengnar eru úr markhópaleit samræmist lögum og góðum vinnsluháttum. Með öllu er óheimilt að miðla upplýsingum sem fengnar eru úr markhópaleit LT til þriðja aðila.
19. Áskriftargjald greiðist mánaðarlega og er gjalddagi reikninga síðasti dagur hvers mánaðar eftir að úttekt fór fram. Eindagi er tíunda hvers mánaðar. Dragist greiðsla fram yfir þann dag munu dráttavextir verða reiknaðir frá og með gjalddaga. Vanskilagjald 450 kr. leggst ofan á innheimtuviðvörun sem fer út 5 dögum eftir eindaga.
20. Vanefni annar hvor samningsaðila samninginn er hinum aðila samningsins heimilt að rifta samningnum, enda sé ekki úr bætt innan 14 daga frá áskorun þar um. Brjóti áskrifandi gegn þeim ákvæðum samningsins er varða trúnað við LT eða skuldara, er LT heimilt að rifta samningnum án undangenginnar aðvörunar og jafnframt gera kröfu á hendur áskrifanda vegna tjóns er hljótast kann af þeim brotum.
21. Ábyrgðarmaður og skuldari heimila Creditinfo Lánstrausti hf að skrá vanskil sem varað hafa lengur en 40 daga í skrá Creditinfo Lánstrausts hf yfir vanskil o.fl.