Önnur þjónusta
Viðskiptavinir Creditinfo hafa aðgang að mörgum mismunandi þjónustuliðum sem sóttir eru frá þriðja aðila. Dæmi um slíkt eru meðal annars upplýsingar um veðbönd sem sóttar eru úr grunni sýslumannsembætta og fasteignaupplýsingar úr Þjóðskrá Íslands. Með miðlun þessara upplýsinga leitast Creditinfo við að auka úrval upplýsinga sem hægt er að sækja á þjónustuvef og mæta þannig kröfum viðskiptavinarins.