Stjórnendayfirlit
Stjórnendayfirlit Creditinfo tryggir þér yfirsýn

Creditinfo býður einstaklingum sem skráðir eru með hlutafélagaþátttöku upp á nýja þjónustu en það er skýrsla sem ber heitið Stjórnendayfirlit. Í þessari skýrslu koma fram upplýsingar sem stjórnendur þurfa að vera vakandi yfir miðað við þær lagalegu ábyrgðir sem á þeim hvíla, t.d. sem stjórnarmenn eða varamenn í stjórn.
Þeir sem eru í stjórnum fyrirtækja bera margvíslega ábyrgð. Stjórnarmenn geta borið bæði skaðabótaábyrgð og refsiábyrgð vegna gerða félags, athafna eða athafnaleysis. Viðkomandi getur ekki borið við þekkingarskorti ef í ljós kemur að félag hefur ekki farið að lögum. Það er skylda stjórnarmanna að sjá til þess að félag skili vörslusköttum, lífeyrisgreiðslum, tilkynni hlutafélagaskrá um breytingar á félagi og skili ársreikningi til ársreikningaskrár Ríkisskattstjóra. Þess má geta að ákvæði laganna um stjórnarmenn eiga við um varamenn.
Reynslan sýnir að algengt er að einstaklingar séu í stjórnum fyrirtækja án þess að vita af því. Getur það komið til af gleymsku, en einnig er til að félög tilkynni ekki um nýja stjórn eða um úrsögn úr stjórn til hlutafélagaskrár. Eins er algengt að breytingar séu gerðar á stjórn án þess að allir stjórnarmenn séu meðvitaðir um þær breytingar. Yfirleitt er það skráning hjá hlutafélagaskrá sem gildir og því ekki nægjanlegt að hafa tilkynnt úrsögn úr stjórn til viðkomandi félags.
Creditinfo hefur tekið saman upplýsingar um þróun skráninga í stjórnum félaga miðað við maí 2009 til maí 2010, sjá nánar hér.
Í skýrslunni Stjórnendayfirlit koma eftirfarandi upplýsingar fram:
- Allar gildandi skráningar um þig hjá Hlutafélagaskrá, s.s. stjórnarseta, prókúruumboð o.fl.
- Nöfn þeirra sem sitja með þér í stjórn/stjórnum
- Hvort og hvenær fyrirtæki sem þú telst í ábyrgð fyrir hafi skilað inn ársreikningi (sl. 4 ár)
- CIP áhættumatfyrirtækja þar sem þú ert skráður stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri
- Hverjir hafa skoðað upplýsingar um þig sl. 6 mánuði er varða vanskil, rekstrarsöguskrá, skráða kaupmála o.fl.
- Eign þín í félögum
- Þitt áhættumat (CIP einstaklingar)
Hægt er að panta Stjórnendayfirlit hér, hjá þjónustusviði Creditinfo í síma 550-9600 eða í gegnum tölvupóst.
Grunngjald fyrir Stjórnendayfirlit er kr. 5.900 Til viðbótar er reiknað verð samkvæmt verðskrá Creditinfo fyrir hverja uppflettingu í hlutafélagaskrá og eign í félögum (verð án vsk).
Stjórnendayfirlit er sent á lögheimili.
Fyrir breytingar á skráningu í Hlutafélagaskrá skal fylla út eyðublöð samkvæmt leiðbeiningum RSK og senda til fyrirtækjaskrár, sjá nánar hér.