Sjodir.is
Á vefsíðunni www.sjodir.is er birtur samanburður á verðbréfasjóðum. Þar er ávöxtun reiknuð út á samræmdan hátt og sjóðir flokkaðir eftir fjárfestingarstefnu og lagalegu umhverfi. Aðgangur að hlutlausum samanburði er gagnlegur þegar skoðaðir eru þeir sjóðir sem í boði eru.
Allar upplýsingar á síðunni eru byggðar á gögnum frá vörsluaðilum sjóðanna. Ávöxtun er byggð á gengistölum frá þessum aðilum og er þeirra útreikningur á gengi ekki endurskoðaður. Gert er ráð fyrir að þeir sjóðir sem skráðir eru hérlendis og starfa skv. lögum nr. 30/2003, uppfylli þau skilyrði sem þar eru sett um miðlun upplýsinga og rekstur verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða. Sama á við um þá sjóði sem skráðir eru á erlendum mörkuðum og starfa samkvæmt þarlendum lögum.
Ávöxtun sjóða og félaga er reiknuð út frá skráðu kaupgengi í lok hvers mánaðar. Ávöxtun allra sjóða er birt í íslenskum krónum en einnig hægt að skoða ávöxtun í öðrum gjaldmiðlum með því að velja aðra mynt í fellilista á síðunni Sjóðir. Við umreiknun ávöxtunar í aðra mynt er notast við kaupgengi í gengisskrániningu gjaldmiðla hjá Seðlabanka Íslands. Nánari upplýsingar um fjárfestingar sjóðanna er að finna á aðalsíðu sjóða sem birtast ef smellt er á nafn sjóðanna. Sjá Sjóðir. Útboðslýsingar eru aðgengilegar á heimasíðum sjóðanna hjá söluaðilum.
Vefsíðan www.sjodir.is er opin öllum án endurgjalds. Creditinfo bendir áhugasömum á að kynna sér síðuna.
Fyrir frekari upplýsingar um Sjóði, vinsamlega sendið tölvupóst á info@sjodir.is.