Markhópalistar

MarkhópalistarLykilatriði í öflugri markaðssókn er vel skilgreindur markhópur og því mikilvægt að eyða hvorki óþarfa tíma né fjármunum í að kynna vörur eða þjónustu til rangra aðila. Vegna sérstöðu og fjölbreytileika gagna getur Creditinfo boðið viðskiptavinum sínum staðlaða markhópalista eða sérsniðið eftir þörfum og veitt ráðgjöf um samsetningu gagna. Þetta á við hvort sem um ræðir markhóp sem samanstendur af einstaklingum eða fyrirtækjum.

Við vinnslu markhópalista koma styrkleikar Creditinfo berlega í ljós þar sem gögnin eru sótt í marga mismunandi gagnagrunna. Um er að ræða upplýsingar úr:

  • Hlutafélagaskrá ríkisskattstjóra 
  • Þjóð- og fyrirtækjaskrá 
  • Ökutækja- og vinnuvélaskrá 
  • Fasteignaskrá Íslands 
  • Ársreikningaskrá Creditinfo Lánstrausts hf 
  • Fjölmiðlagrunni Creditinfo Fjölmiðlavaktarinnar ehf 
  • Já.is

Fyrirtæki sem skráð eru gjaldþrota, með árangurslaus fjárnám eða hætt starfsemi koma aldrei fram í listum Creditinfo. Sé óskað eftir lista yfir hóp einstaklinga bætast meðal annars upplýsingar um aldur, kyn og búsetu við gögn úr ofangreindum grunnum.

Creditinfo býður einnig upp á greiningu á viðskiptamannasafni sem er vel til þess fallin að skilgreina núverandi viðskiptamenn með tilliti til væntanlegra markaðssóknar. Með því að greina nákvæmlega samsetningu á viðskiptamönnum þínum er hægt að útbúa markhópalista sem er sérsniðinn að þeim hópi aðila sem er ákjósanlegastur.

        Frekari upplýsingar um markhópalista veita ráðgjafar Creditinfo í síma 550-9600.

        Þú getur einnig fyllt út formið hér fyrir neðan eða sent okkur tölvupóst.

*Stjörnumerkta reiti þarf að fylla út.
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi