Kröfusafnsgreining

KröfusafnsgreiningGreiningadeild Creditinfo býður viðskiptavinum úttekt á eigin kröfusafni en niðurstöður slíkrar greiningar hafa reynst fyrirtækjum vel við mat á stöðu viðskiptamanna.
Í skýrslunni koma meðal annars fram upplýsingar um fyrirtæki sem eru nú þegar í alvarlegum vanskilum ásamt niðurbroti á kröfum sem skilgreindar eru sem  áhættukröfur byggt á CIP áhættumati Creditinfo. Samhliða niðurstöðum er afhentur ítarlegur listi um stöðu hvers fyrirtækis fyrir sig.

Framkvæmd skýrslunnar er einföld, það eina sem þarf að gera er að senda kennitölur ásamt skuldastöðu sem þó er ekki skilyrði og tekur greiningin 2-3 virka daga. Sé þörf á nánari kynningu á niðurstöðum þá fæst sú ráðgjöf að kostnaðarlausu.

Hafir þú áhuga á kynningu á skýrslunni eða þjónustu Creditinfo vinsamlegast hafðu samband í síma 550 9600 eða sendu okkur fyrirspurn á netfangið: radgjof@creditinfo.is




Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi