IL Cube - greiningarkerfi

Í tengslum við rekstur Innheimtukerfis lögmanna (IL+), býður Creditinfo IL Cube sem er eitt stoðkerfa IL+ sem veitir notendum betri yfirsýn á stöðu mála. IL Cube les og greinir upplýsingar úr IL+ og  getur borið saman margvíslegar tölfræðilegar upplýsingar sem erfitt og jafnvel ómögulegt er að gera með öðru móti.  

Upplýsingar úr kerfinu birtast bæði tölulega og myndrænt og með einfaldri aðgerð er hægt að flytja gögn úr IL Cube yfir í excel til frekari vinnslu gagna. Meðal þess sem IL Cube býður upp á er að:

• Telja og flokka kröfur fyrir ákveðið tímabil, t.d. fyrir tiltekið ár. Einnig er hægt að flokka og leggja saman upphæðir tiltekinna krafna eftir tímabilum.

Sundurliða upplýsingarnar eftir árum eða mánuðum innan hvers árs, og/eða eftir kröfuhafa (einn eða allir), sama gildir um til dæmis útlagðan, og/eða áfallinn kostnað o.s.frv.

Til að unnt sé að nota IL Cube þarf að vera til staðar Microsoft SQL Server 2000 ásamt Analysis Server sem fylgir Microsoft SQL Server 2000.

Til að panta aðgang eða fá nánari upplýsingar um innheimtukerfi er hægt að senda tölvupóst á il@creditinfo.is eða hringja í 550 9600.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi