Innheimtukerfi lögmanna IL+

Creditinfo á og rekur Innheimtukerfi lögmanna. Um er að ræða kerfi sem nær allir innheimtulögmenn landsins nota, auk banka, sveitarfélaga, stofnana og fleiri aðila sem stunda löginnheimtu. Kerfið heldur utan um alla þætti er snúa að löginnheimtu á Íslandi.

Í kerfinu er tenging við vanskilaskrá Creditinfo fyrir þá sem hafa slíkan aðgang. Innheimtukerfi lögmanna er ætlað að auðvelda vinnu, spara tíma og auka yfirsýn á þau mál sem unnið er í á hverjum tíma. Hægt er að kaupa bæði uppfærslur og ný kerfi.

Kröfur um hugbúnað og vélbúnað fyrir útgáfur 2.0 og nýrri:

Lágmarkskröfur:

Pentum II 300Mhz örgjörvi, 64Mb vinnsluminni og Windows 98 stýrikerfi.

Við mælum með:

Pentium III 450 Mhz eða öflugra, 128Mb vinnsluminni eða meira og Windows 2000 eða XP stýrikerfi.
Einnig er gott að net milli tölva sé öflugt. Helst 100Mb

Þeir viðskiptavinir Creditinfo sem kaupa, eða nota, Innheimtukerfi lögmanna geta orðið aðilar þjónustusamnings sem innifelur símaþjónustu, uppfærslur kerfisins og afslátt af námskeiðum.

Til að panta aðgang eða fá nánari upplýsingar um innheimtukerfi er hægt að senda tölvupóst á il@creditinfo.is eða hringja í 550 9600.

Verðskrá fyrir IL+ er að finna hér

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi