Fyrirtækjaskrá

Upplýsingar í fyrirtækjaskrá nýtast þegar félag er ekki skráð í hlutafélagaskrá en þörf er að sjá hver er skráður forsvarsmaður. Fyrirtækjaskráin er uppfærð daglega og inniheldur meðal annars ÍSAT númer (íslensk atvinnugreinaflokkun),  virðisaukaskattsnúmer, nafn og kennitölu forsvarsmanns. 

Notendur ýmissa bókhalds- og viðskiptamannakerfa geta fengið vefþjónustutengingar við fyrirtækja- og þjóðskrá sem eru uppfærðar daglega. Slík tenging sparar mikinn tíma og minnkar meðal annars hættu á innsláttarvillum. Dæmi um kerfi sem eru nú þegar búin að tengjast: TOK plús, dk viðskiptahugbúnaður, Snerta, Navision og Stólpi.

Með aðgangi að fyrirtækjaskrá fylgja upplýsingar úr þjóðskrá.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi