Fasteignir
Á notendavef Creditinfo má nálgast fasteignaupplýsingar frá Þjóðskrá Íslands með leit eftir fastanúmeri eignar eða götuheiti.
Boðið er jafnframt upp á eignaleit eftir kennitölu einstaklinga en einungis lögmenn í innheimtu- og skiptastarfsemi geta fengið slíkan aðgang auk opinberra aðila sem hafa heimild til þess skv. lögum. Til viðbótar við eignaleit geta viðkomandi notendur séð eignasögu aðila.
Umsóknarform fyrir lögmenn er að finna hér
Vilji lögmenn fá aðgang fyrir fulltrúa eða almenna starfsmenn þurfa þeir að lýsa yfir ábyrgð á notkun viðkomandi aðila. Form ábyrgðaryfirlýsingarinnar er að finna hér
Umsóknarform fyrir opinbera aðila er að finna hér
Ef óskað er eftir aðgangi að eignaleit hjá Creditinfo þarf að opna og prenta út viðeigandi skilmála eða umsóknarform (sbr. upptalning að ofan), fylla út, undirrita og senda Creditinfo samkvæmt upplýsingum sem er að finna í skjalinu.