Hlutafélagaskrá

Í hlutafélagaskrá er að finna upplýsingar um aðstandendur fyrirtækja sem eru mjög mikilvægar við mat á hluta- og einkahlutafélögum. Skráin inniheldur einnig upplýsingar um samvinnufélög (svf.), sjálfseignarstofnanir í atvinnurekstri (ses.) og skráð útibú erlendra félaga. Í hlutafélagaskrá eru meðal annars upplýsingar um:

  • Skipaða stjórn
  • Framkvæmdastjóra
  • Hverjir mega rita firma
  • Prókúruhafa
  • Skráð hlutafé
  • Tilgang félagsins
  • Stofnendur félagsins
  • Dagsetningu síðustu samþykkta
  • Endurskoðendur / skoðunarmenn

 

Creditinfo uppfærir hlutafélagaskrána daglega frá ríkisskattstjóra.

Hlutafélagaskrá - sýnishorn

 

Sögulegar upplýsingar úr hlutafélagaskrá

Notendur Creditinfo hafa nú aðgang að nýjum og mikilvægum upplýsingum úr hlutafélagaskrá.  Upplýsingarnar  nýtast þegar kanna þarf sögulegar upplýsingar úr skránni ásamt breytingum sem hafa átt sér stað á milli ára.

Eftirfarandi viðbætur eru nú aðgengilegar í hlutafélagaskrá Creditinfo:

Eldri skráningar: Birtir skráningu félags samkvæmt valinni dagsetningu og sýnir hverjir áttu sæti í stjórn fyrirtækis á ákveðnum tímapunkti.

Breytingasaga:  Birtir helstu breytingar á skráningu félags í tímaröð.

Samanburðarskýrsla: Birtir skráningu félags á tveimur dagsetningum fyrir og eftir breytingu.  Skýrslan auðkennir hvaða upplýsingar breyttust á milli daga.  Samanburðarskýrslan er einnig aðgengileg úr breytingasögu.

Nánari upplýsingar fást hjá ráðgjöfum Creditinfo í síma 550-9600 eða á radgjof(hjá)creditinfo.is

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi