CIP áhættumat einstaklinga

Í reiknings- og lánaviðskiptum fyrirtækja og stofnana er mikilvægt að vinnubrögð séu samhæfð við lánshæfismat einstaklinga.  Með þeim hætti er hægt að tryggja að einstaklingar sitji við sama borð og þeim sé þá best umbunað sem skilvísastir eru, óháð t.d. tekjum, stöðuheiti eða tengslum. Með áhættumati er einnig öruggara að ákvörðun um lánveitingu eða kjör byggi á nýjum upplýsingum, að matið fari ekki fram huglægt, að matið sé samanburðarhæft við aðra viðskiptavini og að matið sé framkvæmt á augabragði. 

Á Íslandi hefur sundurliðun á áhættumati verið þekktast hjá tryggingarfyrirtækjum sem reikna verð miðað við mismunandi aldurshópa ökumanna. Erlendis er þetta þó þekkt í mun víðari mynd og þar styðjast fyrirtæki og stofnanir almennt við „creditscore“ einstaklinga þegar lána- og reikninsviðskipti eru metin, útttektarheimildir, afsláttar- og lánakjör eða innheimtuaðgerðir. Erlendis er það einnig þekktara að einstaklingar nýti sitt eigið áhættumat, eða „credit score“ þegar þeir semja um reiknings- og lánakjör. Sömuleiðis geta einstaklingar sem standa í fjárhagserfiðleikum nýtt sér lágt áhættumat til að rökstyðja beiðni um aðstoð t.d. vegna innheimtu eða greiðsluerfiðleika. Gott er að skoða dæmi um niðurstöður til að sjá hvernig CIP áhættumatið virkar:

Í úrtaki eru allir karlmenn 44 ára á Íslandi, samtals 4448 einstaklingar í maí 2010. Niðurstöður CIP áhættumats sýna að flestir eru í áhættuminnstu  flokkunum, A og B. Þetta þýðir að langflestir eru mjög ólíklegir til að lenda í alvarlegum vanskilum með sínar skuldbindingar. Í flokki C eru líkur viðkomandi á alvarlegum vanskilum orðnar meiri og síðan koll af kolli. Að lokum má sjá að 577 einstaklingar í þessum hópi eru nú þegar með skuldir í einhvers konar löginnheimtuferli og því skráðir á vanskilaskrá. 


 
CIP áhættuamatið er framkallað þannig að viðkomandi einstaklingi er flett upp í kerfi Creditinfo, reiknilíkanið sækir þá rafrænt mismunandi upplýsingar um viðkomandi og reiknar út líkur á vanskilum. Breyturnar sem reiknilíkanið styðst þá við eru mjög margvíslegar. Þær eru ekki sýnilegar en eru samt forsendur flókinna útreikninga. Breyturnar eru t.d. aldur, hverjir hafa flett viðkomandi upp í vanskila- og rekstrarsöguskrá, hjúskaparstaða, upplýsingar úr skatta- og útsvarsskrá, meðaltals skráningar á vanskilaskrá síðastliðna 12 mánuði og fleira. CIP áhættumat má ekki sækja nema fyrir liggi heimild einstaklingsins til þess að skoða þessar upplýsingar. Vinnsla matsins fer þá fram þegar tilteknar upplýsingar eru sóttar í kerfi Creditinfo. 

CIP Áhættumatið er hannað af systurfélagi Creditinfo, Creditinfo Decision, sem sérhæfir sig í ráðgjöf og hönnun módela við stýringu útlánaáhættu (e: Credit Risk Management). Notast var við línulega aðhvarfsgreiningu (e: logistic regression) við smíði áhættumatsins. Við áreiðanleikaprófanir kom í ljós að spágeta líkansins er afar góð og sú besta sem Creditinfo Decision hefur séð í samanburði við nágrannalönd Íslands.

Allir einstaklingar 18 ára og eldri geta þó óskað eftir að fá sitt CIP áhættumat sent til sín og þá eru niðurstöður sendar á lögheimili viðkomandi.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi