CIP áhættumat fyrirtækja


CIP Áhættumat er tölfræðilegt reiknilíkan sem metur líkur á alvarlegum vanskilum fyrirtækja og er því mikilvægt við ákvörðunatöku og áhættustýringu viðskipta. Áhættumatið bætir ákvörðunartöku þegar kemur að lánveitingu til nýrra og núverandi viðskiptavina.
Styrkleikar:
Hraða ákvörðunartöku- Nota sjálfvirka ákvörðunartöku
- Samræma ákvörðunartöku
- Forðast áhættumikil viðskipti
- Auðvelda verðlagningu
- Meta raunáhættu
- Notkun CIP Áhættumats
Líkanið flokkar fyrirtæki í einn af tíu áhættuflokkum þar sem eitt er áhættuminnstur og tíu áhættumestur. Mikilvægt er að þeir aðilar innan fyrirtækis sem koma að ákvörðunartöku þekki eiginleika CIP áhættumatsins og skilgreini áhættumörk. Ávallt þarf að skoða vel þær forsendur sem gefnar eru upp og bera áhættumatið saman við innri gögn.
CIP áhættumat byggir á 27 breytum sem hafa mismikið vægi, meðal þeirra eru:
- Stærð og aldur fyrirtækis
- Atvinnugrein
- Staðsetning fyrirtækis
- Greiðsluhegðun fyrirtækis
- Tölur úr ársreikningi og breytingar frá síðustu árum
- Fjárhags- og vanskilaupplýsingar um stjórnarmenn og aðra tengda aðila
- Sögulegar upplýsingar um alvarleg vanskil
- Vanskilaupplýsingar
- Tíðni uppflettinga í vanskilaskrá
CIP Áhættumatið er hannað af systurfélagi Creditinfo, Creditinfo Decision, sem sérhæfir sig í ráðgjöf og hönnun módela við stýringu útlánaáhættu (e: Credit Risk Management).
Gögn frá Creditinfo voru fyrst send til rannsóknar árið 2001 og hefur þróun og smíði reiknilíkansins staðið yfir frá þeim tíma. Í apríl 2008 kynnti Creditinfo nýtt CIP áhættumat þar sem íslenskir og alþjóðlegir sérfræðingar höfðu skoðað 23.000 fyrirtæki tvö ár aftur í tímann. Notast var við línulega aðhvarfsgreiningu (e: logistic regression) við smíði áhættumatsins. Við áreiðanleikaprófanir kom í ljós að spágeta líkansins er afar góð og sú besta sem Creditinfo Decision hefur séð í samanburði við nágrannalönd Íslands.